Nú er ég að stofna hljómsveit og er þegar kominn með húsnæði (trommusett á staðnum sem hægt er að nota gegn því að trommarinn fari mjög vel með allar græjur) og nokkur lög tilbúin í spilun nú vantar mig bara meðspilendur og nú auglýsi ég eftir trommurum í prufu.
Fastir tímar verða á æfingum svo að “hafa ekki tíma” er lélegt svar.
Ég er fæddur 1993 og er í Hafnarfirði. Mér er slétt sama um aldur svo lengi sem að færni sé til staðar, ég vona að þið séuð á sama máli.
Mig langar að spila svona melódískan metal með smá prog áhrifum.


hafið samband hér eða á msn:
aui_4_4(hjá)hotmail.com

Sjáumst,
Auðunn