Eins og fyrirsögnin gefur til kynna hef ég til sölu Washburn x-10 rafmagnsgítar og 12w marshall magnara.

Allt er þetta í hreint út sagt frábæru og satt að segja yndislegu og ef ég á að vera alveg honest þá verð ég að gefa til kynna að þetta eru hreitn frábær hljóðfæri.

Nú, hægt er að kaupa þetta saman í einum dúnrandi skemmtilegum og flippuðum pakka á ekki meira né minna en 25.þús kjell. Einnig er hægt að bjóða bara í tryllitækin og er ég mjög sveijanlegur og skemmtilegur einstaklingur.

Ekki má svo gleyma að snúra og taska fylgir með, en eru þetta bæði alveg frábærir viðaukar við þennan stórskemmtilega pakka minn.

Einnig er ég til í að selja tryllitækin í sitthvoru lagi en hentugara er þó að kaupa saman.

Ég vil þakka þér fyrir kæri lesandi fyrir að hafa gefið þér tíma til þessa að hlusta á þetta tilboð mitt og vona ég að það fái frábærar móttökur frá eins skemmtilegu og margslúngnu fólki á þessum alveg hreint frábæra vef.

Takk fyrir mig, kv jón.