Sælir Hugar,

Við erum þrír 18 og 19 ára peyjar af Höfuðborgarsvæðinu og okkur vantar bassaleikara í lið með okkur. Við erum tveir gítarleikarar og trommari.

Okkar helstu áhrifavaldar eru m.a. kóngarnir í Opeth. Fleiri áhrifavaldar eru t.d. Pantera, Children of Bodom, Lamb of God, Slayer, Megadeth, Finntroll, The Haunted, At the Gates, Arch Enemy, Dimmu Borgir og Dissection.

Við vorum samt aðallega að pæla í að spila einhversskonar Progressívan Death Metal. Það kemur bara í ljós hvernig blandan verður.

Þannig að bassaleikarar; ef þið hafið áhuga, metnað og tíma til að spila epíska tónlist, ekki hika við að hafa samband. Þið getið sent PM á mig eða á Epitaph hér á Huga, eða bara skrifa í comment.

Kveðju