Eins og titillin gefur til kynna er ég nýbyrjaður að æfa á rafmagnsgítar og var að velta því fyrir mér hvort aðrir gítaristar gætu hjálpað mér aðeins. Ég var að velta því fyrir mér hvort þið gætuð bent mér á nokkrar síður með svona “basic guitar techniques” og eins tabs sem er létt að spila ef maður er nýbyrjaður. Ég var líka að velta því fyrir mér hvort það borgaði sig að fara í gítarskóla til þess að læra grunninn og ef svo er, hvaða gítarskóla.
Þakka yður fyrir að taka tíma til þess að hjálpa mér.