Ágætu Hugarar

Hljómsveitin Frú Grímheiður stendur á barmi heimsfrægðar um þessar mundir! Í vegi okkar stendur aðeins eitt; okkur vantar lipran bassaleikara okkur til fulltingis. Frú Grímheiður hefur leikið saman í rúm tvö ár, en gengist undir miklar mannabreytingar, og leitast nú við að fullmanna hópinn. Frú Grímheiður leikur grípandi pönk/popp-tónlist (hugsið ykkur Queen og Sex Pistols í eina sæng)

Mikill hugur er í mönnum og mikið tónleikahald, plötuupptökur ofl. í bígerð, en við höfum eigið stúdíó til umráða.

Áhugi, bassafærni og …. áhugi eru skilyrði óumsemjanleg. Allar græjur eru til staðar - þú þarft bara að mæta. Við erum yfir tvítugt.

Frekari upplýsingar gefa: Guðbrandur - 6607075 & Ingi Vífill - 6914373 eða ingi.vifill@gmail.com

Bestu kveðjur, Frú Grímheiðu
Ég þakka….