Jæja, það hlaut að koma að því að ég hætti að búa til alla þessa korka um spurningar um gítarkaup, því ég er búinn að kaupa nýjann grip! American Fender Stratocaster er kominn í safnið! Fyrsti alvöru gítarinn minn. Ég fór í Tónabúðina um daginn og prófaði þennann gítar og hann er alveg þrælmagnaður!
Linkur á gítarinn http://www.fender.com/products//search.php?partno=0110102747
Þessi gítar er alveg eins nema minn er með 3 single coil, ekki 2 single coil og 1 humbucker. Ég verð að segja að ég er ekkert nema ánægður með þennann grip ;)