Til sölu Bogner Shiva haus (EL34) með 1x12 Bogner Shiva hátalaraboxi

Árgerð 2007 með nýjustu uppfærslunum (bright switches, endurbætt effects loop, sérstakt volume fyrir Gain 2 sem gerir magnarann eins og þriggja rása)

Þetta er alger professional græja sem hljómar alveg einstaklega vel (Fender clean og feitt overdrive). Magnarinn og boxið eru mjög lítið notuð og líta út eins og ný. Fyrir þá sem horfðu á Rockstar Supernova (þáttinn sem Magni var í) þá notaði lead gítarleikarinn í húsbandinu Bogner Shiva í öllum þáttunum.

Með hausnum fylgir mjög vandað flightcase og með boxinu fylgja upprunalegar Bogner umbúðir. Að sjálfsögðu fylgir upprunalegt footswitch með.

Þessir magnarar eru ekki á hverju strái og allra síst á Íslandi. Þetta er kjörin græja fyrir atvinnugítarleikara eða hljóðver vegna þess hve fjölhæfur magnarinn er.

Sjá:
http://bogneramplification.com/customshop/ShivaInfo.php HAUSINN OG BOXIÐ ERU Á TVEIMUR NEÐSTU MYNDUNUM
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Guitar+Amp/product/Bogner/Shiva+Head/100/1

Verð:
Haus: 220.000 kr. (með flightcase, footswitch og hátalarasnúru)
Box: 60.000 kr.
Haus + box með öllu: 265.000 kr.

Ég er staddur á Ísafirði.
Kaupandi greiðir flutningskostnað.
Eftir að kaupandi fær magnarann í hendur hefur hann sólarhringsfrest til að senda magnarann til baka og fá endurgreitt, ef hann af einhverjum ástæðum er ekki ánægður með hann.

Áhugasamir hafi samband í PM hér á Huga, á stefanfreyr at hotmail.com eða í síma 849 6063

Ég á svoooo eftir að naga mig í handarbökin fyrir að láta þenna grip frá mér …