Frábær lítill Vox magnari til sölu, hann er 15w og nær alveg helvíti góðum krafti, alveg rosalega eiginlega. Ég hef lesið nokkur reviews um það að þessi magnari nái um 80-90% af Vox hljóðinu, menn deila nú samt eflaust um það. Á honum er hægt að fá fínasta overdrive með því að hækka gainið aðeins, svo hækkaru það meira og ýtir svo á boost takkann og þá ertu kominn með helvíti sweet distortion fuzz. Svo er tremolo á þessu og reverb lika.

Hægt er að tengja headphones í þetta fyrir svona “silent practice” og svo er líka external speaker tengi til að tengja í stærri magnara og spila í gegnum hann. Tengi fyrir foot switch auðvitað líka og svo output sem getur farið t.d. í tölvu eða mixer eða eitthvað.

Keypti þetta á 10.500kr minnir mig fyrir svona 3 mánuðum, ég er bara að flýja land í bili og langar að losa mig við sem mest af draslinu mínu. Ég sel þessa græju á 7 þúsund krónur sem er náttúrulega ekki neitt, þrusufínn magnari…

Ef þið hafið áhuga eða hafið spurningar, hringiði bara og spyrjið… 848-9678.

Bætt við 30. júlí 2008 - 18:03
http://www.voxamps.co.uk/pathfinder/15r.asp