Góðan dag, ég er með Trace Elliot Super Tramp haus og box sem ég er ekki að nota og hef ákveðið að selja. Er nefnilega ný fluttur í blokk og ég sé ekki að ég muni nota magnarann eitthvað.

Hausinn er 80w mosfet magnari og boxið er 4x12" 250W. Magnarinn er tveggja rása með dual gain rás og stillanlegu boost leveli sem hægt er að stjórna í gegnum footswitch (gain/boost). Á hausnum er einnig að finna FX loop.
Stæðan er í frábæru lagi. Hún er framleidd á þeim árum sem Trace Elliot var staðsett í Bretlandi og áður en það var keypt af Gibson og flutt til Bandaríkjana.

Ég er staðsettur á Akureyri.

Mynd: http://myndir.ekkert.is/d/105517-4/DSC00028.JPG

Verð: Tilboð.