Er að kanna hvort það séu einhver bönd sem vantar söngvara eða einhverjir sem vilja stofna hljómsveit.

Ég er 23 ára og uppáhaldssöngvarinn minn er Mike Patton. Er með ágætis raddsvið, um þrjár áttundir eða svo, kemst svona temmilega hátt, ekkert rosalega samt. Öskra ekki mikið, bara rétt aðeins. Hef lært söng fyrir nokkrum árum. Væri til í að skoða eitthvað þétt rokk/popp/alternative. Get samið texta bæði á ensku og íslensku.

Sendið mér hugaskilaboð ef þið hafið áhuga.