Er með til sölu 3 stk. Samson R21 dynamic mic-a í tösku.

Þetta er nýlegt og lítið notað. Voru keyptir sem söngmic-ar í æfingarhúsnæðinu okkar og hafa því bara verið notaðir þar.

Ástæða sölu er að við uppfærðum okkur í Shure SM58 þannig ég sé ekki ástæðu til þess að halda í þessa lengur.

Þetta eru fínustu mic-ar til þess að nota fyrir söng og jafnvel í upptöku, ekkert hágæðadót en ekkert drasl heldur.

Set á þá 5000 kr. sem er ekki slæmt verð miðað við að fá 3 stk. af mic-um á einu bretti og meira að segja í tösku :)

Er ekki með mynd af sjálfum micunum en þetta er mynd af alveg eins setti:

http://www.americanmusical.com/images/B/p13913B.jpg

Endilega senda á mig EP ef áhugi er fyrir hendi.

Kv.