Sæl veriði.

Hljómsveitin Manual Haste Drive óskar eftir söngvara og rythm gítarleikara. Við erum þrír 15 ára piltar og spilum á trommur, bassa og gítar. Hljómsveitir eins og Queens Of The Stone Age, Kyuss, Mínus, Brain Police og Cliff Clavin hafa haft mikil áhrif á okkur og við erum þegar með nokkuð af frumsömdu efni sem að við viljum ólmir bæta söng inn í og öðrum gítar. Hljómsveitin er stödd á Höfuðborgarsvæðinu(nánar tiltekið í Garðabæ), og erum við með aðstöðu í skólanum okkar á mánudagskvöldum en eigum greiða leið í bílskúrinn hjá trommaranum fyrir fleiri æfingar. Það er fínt að minnast á að verið er að vinna í aðstöðu í kjallara eins okkar. Við eigum hinar bestu græjur og það er enginn skortur á slíku, nema söngkerfi(Það væri fínt ef söngvari gæti reddað sínum eigin mic-um og kerfi)annars verður að finna út úr því á einvern annan hátt ef að söngvari á ekki græjur eða er skítblankur eins og mörg okkar eru. Ef einhver fær söngvari og/eða gítarleikari er staddur einhverstaðar má hann hringja í síma:

6981345(Hrói), 8673446(Sindri) eða 6628873(Jón) og fá frekari upplýsingar um áheyrnarprufu og annað sem að hann hefur áhuga á að vita.

Danke.