Jæja, ég er að fara til parísar eftir einhverja 19 daga að hitta Jim Morrison og langar að vita hvort að þið huganotendur hafið einhverja vitneskju um góðar hljóðfærabúðir í París. Húsið sem ég verð í verður í miðju listamannahverfinu minnir mig, ég verð allavega mjög stutt frá Sacré-Cœur og ég er þá ekki langt frá Père Lachaise kykjugarðinum, Louvre safninu, Notre Dame og svona. Ég verð semsagt í miðri París bara. Ég mun líklega bara fara í þessar búðir til að skoða úrval og fleira en ef einhver er reyndur í hljóðfærakaupum í frakklandi, getur þá sá hinn sami gefið mér einhverjar upplísingar um það hvernig verðið er? Er þetta mikið ódýrara en hér heima eða bara svipað verð?

En allavega, komið með einhver búðar og götu heiti handa mér þar sem ég get leitað ;)

Bætt við 29. febrúar 2008 - 19:29
Og ef þið hafið eiithvað að seigja um þetta: http://www.hugi.is/gulloldin/threads.php?page=view&contentId=5673835 þá er ykkur það velkomið ;)
Nýju undirskriftirnar sökka.