Já, ég er með vandamál með bassamagnarann minn…. Það var um daginn sem þetta byrjaði, þá byrjaði hann stundum bara að detta út, hljóðið sko, hann datt ekki úr sambandi. Núna er hljóðið bara endanlega farið.. er búinn að reyna það sem ég hélt að hugsanlega gæti verið að. Ég hélt að þetta væri kannski power snúran (er með snúru sem ég get tekið út) lét aðra í það virkaði ekki. Ég veit ekki um neitt sem ég get sjálfur gert til að reyna að redda hljóðinu. Plís hjálpið mér með þetta ef þið vitið einhvað um þetta. BTW þetta er Hartke HA1200