Þannig er mál með vexti að ég á Orange AD30 haus og box, sem er geðveik græja. Ég á einnig Soldano X-99 Preamp sem er ekki minna geðveik græja og ég keyri hana í gegnum Orange-hausinn. Ég er sem sagt að keyra í gegnum tvo preampa og svo power ampinn í Orange-inum.

Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri sniðugra að skipta hausnum út fyrir einhvern góðan power amp þannig ég sé bara að keyra í gegnum einn preamp? Er þá einhver poweramp sem þið mælið sérstaklega með?
“That's funny to me”