Er með Yamaha Oak Custom trommusett til sölu. Settið var keypt nýtt í byrjun ágúst 2007 á u.þ.b. 170.000 kr. Það er mjög vel með farið og eru frekar ný skinn á öllum trommum. Stærðirnar eru:

24x17 bassatromma - REMO clear Powerstroke 3
10x8 tom-tom - REMO coated emperor
13x15 floor tom - EVANS clear EC2
15x15 floor tom - REMO coated emperor

Liturinn á því heitir að ég held “blue ridge blue oak” en ég fann því miður enga mynd af litnum á netinu þar sem að ekki voru framleidd mörg Oak Custom sett í þessum lit, að mér skilst.

Verðið ER 150.000 kr. þar sem að trommurnar eru vel með farnar og ný og dýr skinn á öllum trommum. Það skal tekið fram að þeta eru eingöngu “skeljarnar” og ekkert hardware fylgir fyrir utan fætur á floor tom.

Þetta er alveg fullkomlega professional trommusett sem er kraftimikið og öflugt.

Áhugasamir skulu hafa samband við Arnór í síma 662-5872 eða á netfangið arnor@flotlagnir.is