Er að selja Gibson SG Special Faded (Worn Brown), keypti hann af www.music123.com fyrir rúmlega tveimur árum, en hef lítið sem ekkert notað hann síðasta árið, þannig ég hef ákveðið að selja hann. Það eru einhver för og skrámur eftir spilun og svo framvegis, en ég mun láta lappa uppá hann, skipta um strengi og svona áður en ég sel.
Pick-up-arnir eru þeir sömu og voru í gítarnum þegar ég keypti hann nýjan, eina sem ég hef skipt um eru strengir og tuner skrúfur.

Ég er ekkert að flýta mér að selja hann, og ég veit reyndar ekkert hvað ég ætti að selja hann á, þannig ég bið bara um tilboð, og jafn vel þótt þú ætlir ekki að kaupa hann væri gaman að fá einhverjar verðhugmyndir.

Meiri upplýsingar um gítarinn má finna hér
Og mynd af samskonar gítar má finna hér

Endilega sendið mér pm, eða svarið þessum pósti, ef þið hafið einhverjar spurningar.