Jæja..þannig vill svo til að Reykvisk Prog/rock sveit er að leita af söngvara. Við erum þegar 5 í sveitinni, tveir gítarleikarar, hljómborð, bassi, trommur. Við erum allir á fyrsta ári í menntaskóla en þrátt fyrir ungan aldur erum við búnir að spila á hljóðfærin okkar síðan við vorum 6 ára. Æfum allir í tónskóla og erum vel þéttir. Erum á fullu að semja…mikið samið heima og svo hittast meðlimir og sýna hvorum öðrum. Erum með æðislega aðstöðu og með allar græjur sem þarf. Okkur langar ekki í einhver lítið kröftugan söngvara heldur einhvern alvöru sem þorir að sýna sig og sanna. Við erum að tala um svona Jon Anderson söngvara. Mjööög ólíklegt að fina einhvern hér á huga en það drepur engann að prófa þetta kvikindi. Hann má allveg vera eldri en við.