Ég er að selja Marshall valvestate 100v model 8100 ásamt marshall 4*12 model 8412 risa cabinet, keypti stæðuna notaða og hef sjálfur notað hana í ca. 2 ár.

Það er svakalegur kraftur í þessu og góðar stillingar: mjög góð clean rás en ég mæli frekar með effecta en distortion rásinni, það er hægt að loopa og tengja footswitch í heddið en footswitch fylgdi ekki með er ég keypti settið. Ég er nýbúinn að láta hreinsa allt ryk úr hausnum svo að hann er betri en nokkru sinni fyrr.


Stæðan hefur reynst mér ótrúlega vel og er ég að selja hana þar sem ég hef nú þegar fjárfest í dýrari græju, ég set 35,000kr á þetta tvennt og áhugasamir svariði mér hér.
Takk,takk