Já gott kvöld. Ég var að fá mér nýjan magnara sem hefur þann skemmtilega eiginleika að hægt er að setja næstum því hvaða lampa sem er í hann án þess að þurfa að stilla viðnám og eitthvað dóterí sem ég kann ekki að gera. Þannig að þeir sem vita eitthvað í sinn haus um lampa mega endilega láta mig vita hvaða lampar séu skemmtilegir og endilega skrifa hvernig þeir sánda og hvað sé skemmtilegt við þá. Endilega láta líka vita hvort þeir hafi einhverja reynslu af lömpum sem eru lélegir eða bara fínir. Einnig ef einhver hefur einhverja skemmtilega fróðleiksmola um lampa væri skemmtilegt að heyra um það.