Sælir.

Þannig er mál með vexti að mig vantar byrjendabassamagnara. Það er, bassamagnara fyrir byrjanda á bassa. Ég er að reyna að koma litla bróður af stað í bassaleik, er þegar búinn að kaupa gamla Washburn Lyon druslu sem ég er í óðaönn að gera upp, en mig vantar enn magnara fyrir hann.

Ég er bara að leita að litlum magnara, 15-30w, svo ef einhver vill losna við litla magnarann sem hefur bara setið og safnað ryki í einhvern tíma fyrir einhverja smáupphæð ENDILEGA hafðu samband.

Sem fyrst - ætlaði að gefa honum þetta í afmælisgjöf á LAUGARDAG svo .. því fyrr því betra!