Er hérna með semsagt Line 6 Effecta pedal og tvo hausa, Distortion og Metal sem ég vil selja. Hausarnir eru einfaldlega skrúfaðir ofan í og úr pedalnum þegar skipt er um. Svo er líka alltaf hægt að kaupa allskonar hausa í tónastöðinni en hausinn er einhverstaðar milli 2 og 3 þúsund en pedallinn sjálfur er á 8-9 þúsund þar.

Distortion hausinn notaði ég aldrei mikið. Þetta er bara distortion sem þú getur still eins og þig langar og er sennilega meira fyrir þá sem eru í svona blús rokki en gefur samt sem áður gott sound frá sér.

Metal pedallinn er algjör snilld. Mjög góður og frábært hljóð í honum. Stillingarnar gefa marga möguleika á mismunandi hljóðum. Ég notaði hann alltaf, eina ástæðan fyrir að ég hætti með hann er að ég fékk mér Boss ME-50 en að mínu mati er metal hljóðið í line 6-inum betra en í bossinum, getur verið mikið þyngra og þéttara, bossinn er bara með fleiri stillingar og stillingar eftir minni. Mæli tvímælalaust með þessum.

Búðarverð á þessu var eitthvað í kringum 13000 þúsund, var eitthvað jólatilboð á pedalnum með distortion á 10000 svo keypti ég mér metal hausinn á 3000.

Langar að setja 8000 á þetta þar sem hann hefur verið lítið notaður í rúmlega ár en hann er næstum tveggja ára gamall og virkar sem nýr.