Góðann daginn, er 18 ára bassaleikari á AK sem langar að spila meira en ég geri í dag. Er í hljómsveit sem æfir á miðvikudagskvöldum, en langar að gera eitthvað annað og meira líka.
Magnarinn er í æfingarhúsnæðinu í augnablikinu, en magnari verður ekki vandamál.

hlusta mest á Death, Dream Theater, Bullet for my Valentine, killswitch engage o.fl en er í rauninni til að spila hvað sem er, þó að ég sé sjálfur meira fyrir tónlist í þyngri kantinum, en er til í að spila allt svo lengi sem að það sé hægt að dilla sér aðeins við það ;)

Hef ekkert rosalega mikla reynslu í að spila með hljómsveitum (búinn að lenda í mörgum hljómsveitarpásum, hef spilað á einhverjum 4-5 tónleikum (fyrir utan tónlistarskólann)), er búinn að spila í hva.. 4 eða 5 ár, og búinn að vera í tónlistarskóla í 4

Get byrjað að æfa á fullu í desember (þegar prófin eru búin), hef svo allt sem þarf (nema pláss) til að taka upp, og þætti gaman að geta tekið upp með bandinu.

hægt að hafa samband með hugapóst, eða bara svara korknum
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF