Þetta er “vintage white” japanskur fender jaguar árg 97/98 (body: dec97 og háls:feb98)

pikkuppar: seymour duncan antiquity í bridge og háls. hljóma æðislega enda kosta þeir sitt.

pickguard: tortoise

háls: ´70s headstock, rosewood fingraborð, “mother of pearl” dot inlay, ég eyddi góðum tíma í að rétta hálsinn að mínum þörfum, stilla hann innbyrðis og actionið er mjög þægilegt. Þetta er greinilega eitthvað reissue þar sem tunerarnir eru svona vintage looking.

sveifina vantar!

Það er þekkt dæmi með þessa jaguar og jazzmaster gítara að bridge-ið var oft með stæla, skröltandi og það að strengirnir áttu það til að skreppa til ef spilað var fast á þá. En ég er búinn að modda (ekki sjáanlega) stólinn þannig að það vandamál er úr sögunni. Einnig er hægt að kaupa svona buzz-stop eða mustang stól.

hann er vel með farinn en ber samt allveg merki um það sé búið að spila á hann. Það eru nokkrar minor rispur hér og þar, ein sprunga í lakkinu þar sem body og háls mætast og svo er merki um minor högg á stærð við gat í norskri krónu:) á einni hliðinni, sést samt ekkert í viðinn.
Sem sagt gítarinn kominn með smá mojo:) en maður þarf að leita að þessum göllum.

það er ekkert vesen með neitt í þessum gítar, hann er allger dúlla og eina ástæðan fyrir að ég vill skipta honum út er sú að ég á annan offset contour body gítar (jazzmaster) og nota hann bara miklu meira.

Ég er aðallega að leita að áhugaverðum skiptum. Allt í fender familíunni kemur til greina og líka aðrir gítarar, en metalgítarar koma ekki til greina.

Einnig er ég opinn fyrir tilboðum!!!

þú getur addað mér á gunni_waage@hotmail.com ef þú vilt sjá myndir. en hér er linkur á allveg eins gítar (bara ekki með bridge coverinu og sveifinni)

http://www.woodbrass.com/images/woodbrass/F010-0900-805.JPG

kveðja gunni


Bætt við 6. nóvember 2007 - 22:34
hehe hefði kannski átt að setja “til sölu” í fyrirsögnina svo það liti ekki út fyrir að ég væri bara að segja ykkur frá gítarnum:D
"To me a guitar is a guitar and they need to be played. Not be in museums or treated like holy relics." ~Joe Bonamassa~