Langaði bara að sjá hvort það væri áhugi fyrir að gera kubb á þessu áhugamáli fyrir þá sem eru ekki í hljómsveit að geta auglýst sig? Þar sem aðrir notendur sem eru að leita sér af fólki til að spila með geta litið á kubbinn séð hverjir eru á lausu og sent þeim skilaboð.

Dæmi (kubburinn)

Nafn: Jón Jónsson
Aldur: 17
Hljóðfæri: gítar
staðsetning: Reykvík (Grafarvogur)
Reynsla: 5ár
Tónlist: Punk
Æfingaraðstaða: já er með bílskúr til að hýsa hljómsveit.
Annað: “er á bíl, auðvelt að ferðast”

Bætt við 29. júlí 2007 - 18:51
fólki myndi þá senda stjórnendum upplýsingar um sig ef það vildi fara í þennan dálk. (athugið að þetta er ekki komið upp, þetta er enþá bara hugmynd)