Getur einhver hérna sagt mér hvað svona ‘'gítarhljómborð’' heitir, helst bæði á íslensku og ensku? Er búinn að leita á google undir ‘'guitarkeyboard’' og jafn klunnalegum nöfnum og er búinn að fá frekar dræmar undirtektir…
Ég er að tala um lítið hljómborð sem maður heldur á eins og gítar, þetta er svoldið 80's hljóðfæri.

P.S. Ef einhver er búinn að sjá nýjustu auglýsingu Kaupþings þá er þetta alveg eins og hljóðfærið sem kallinn er með.