Komiði sæl,

Ég er með eitt stykki Peavey Classic 50 til sölu. Þetta er combo-magnari með 2 x 12" keilum.

Allar upplýsingar um þessa magnara eru að finna á www.peavey.com

Magnarinn er rétt rúmlega 1 árs og er með gamla lúkkinu, sem er miklu flottara að mínu mati.
(http://www.rickalexander.com/BigSteel/PeaveyClassic212.jpg)

Gripurinn er í topp-standi og er ég tiltölulega nýbúinn að skipta um lampa og setja JJ lampa í hann, og satt að segja soundar hann guðdómlega og bjögunin verður miklu fallegri.

Með magnaranum fylgir Hardcase, Hardcase Ampmate 120 svo nákvæmni sé gætt, en magnarinn hefur alltaf verið í Hardcase-inu þegar ég fer eitthvað með hann og er því eins og áður kom fram mjög vel með-farinn.

Magnarinn kostar nýr 104.500 kr. í Tónabúðini, Hardcase-ið 23.200 og nýju lamparnir voru eitthvað í kring um 10.000 kr.

Endilega sendið tilboð með hugapósti.

Kv.