Ég hef ákveðið að vera ekkert að fegra/lengja greinina neitt frekar með uppbyggjandi og skemmtilegum athugasemdum og kem mér því beint að efninu. Núna á næstunni ætla ég mér að fjárfesta í nýjum crash og china þar sem þeir sem ég á eru hálfónýtir(sabian crashinn brotinn í tvennt(bókstaflega) og Chinann minn er Chin dal crash sem fylgdi með mapex setti sem ég fékk gefins). Í augnablikinu er ég mest megnis að spila svona Rólegan og Fallegan en samt svona mellow þungan metal(www.myspace.com/occasionalhappiness) en annars er ég einfaldlega í metalnum (melódískum og þungum). Eru hér einhverjir sem gætu komið með meðmæli á góðum(helst í svona ódýrari kantinum) crash og china cymbölum sem ég hugsanlega gæti verslað mér. Öll Skítköst eru vinsamlegast afþökkuð og vona ég innilega að geta fengið góðar ráðleggingar.