Mig eins og flestum öðrum langar til að verða betri gítarleikari! En ég var bara svona að spá, hverju mælið þið með að maður sé að æfa þegar maður er einmitt að æfa sig…… fingraæfingar, lög, skalla o.s.frv.?
Síðasta lag sem ég lærði var Welcome To Bucketheadland(fyrir utan shredd kaflana), og svo var ég nýlega að læra sóloið í Epic.
Ágætt væri líka ef þið gætuð bent á guitar pro 4 tab fyrir laginu.(ef þið eruð þá að mæla með að læra lög)

Fyrirfram þakkir, Auðunn.