Hress hljómsveit á aldrinum 17-18 ára leitar að hljómsveit til að deila æfingarsvæði frá og með 1. júlí á frábærum stað í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Nánar tiltekið í Skútuhrauni.

Meðlimir verða helst að vera á svipuðum aldri og við, jafnvel yngri..

Herbergið sem við höfum til umráða er í stærri kantinum og rúmar vel tvær hljómsveitir. Við erum allir mjög reglusamir og snyrtilegir og erum lítið að gera annað þarna en að æfa. Samið verður um æfingartíma og settar verða umgengisreglur.

Leigan er 25.000 krónur á mánuði per hljómsveit, þannig að fyrir 5 manna hljómsveit er einungis 5.000 kall á mánuði. Einnig þarf að greiða tryggingagjald (25.000 kr.) sem hægt er að fá endurgreitt þegar hljómsveit hættir að nota æfingarsvæðið.

Við stefnum á að fá okkur söngkerfi núna á næstu vikum þannig að möguleiki er að fá afnot af því ásamt því að við eigum e-h af hljóðnemum sem hægt er að fá lánað ef við treystum viðkomandi fyrir því..


Áhugasamir geta haft samband við mig gegnum einkaskilaboðakerfi huga eða á arnarfreyr@gmail.com (Email/msn). Einnig á ég nokkrar myndir af æfingarsvæðinu sem ég get sýnt.


F.h. Spiral Groove…
Arnar Freyr - Trommari

Bætt við 18. júní 2007 - 22:54
Við þurfum að fá einhverja mjög fljótt inn og höfum takmarkaðan tíma til að ráða sjálfir hverjir koma inn…