Sælir fellow-drummers

Nú er ég í vandræðum og vantar smá aðstoð frá ykkur. Nú veit ég að flestir hérna eru of cool fyrir tabs og segja fólki að “picka hlutina bara upp” í hvert einasta skipti sem einhver minnist á tabs. Ég reyni nú oftast að gera það sjálfur en það tekst misvel og styðst maður því stundum við þess konar hjálpardekk. En eftir að MXTabs var “lokað” þá hefur mér gengið illa að finna það sem ég leita að.

Nú er vandamálið að ég var beðinn um að fylla í skarðið sem trommari af Rage Against the Machine cover bandi og fyrsta æfingin er eftir nokkra tíma. Ég hef því engan tíma (né aðstöðu ef því skiptir) til að picka lögin upp. Ég bið því ykkur starfsbræður hjálpar með því að deila þeim síðum sem þið notið eða vitið af.

Endilega verið ekki hræddir um að fólk drulli yfir ykkur fyrir að nota tabsa. Í versta falli þá getur “vinur ykkar hafa bent ykkur á þessa síðu” ;)

Vona að einhver geti reddað mér =)