Já ble! Heyrðu mig vantar kannski að komast í band, ég er í bandi núna sem ég fíla í botn en mig langar að komast í eitthvað annað auka sem hefur gaman af því að spila og er duglegt að reyna að koma sér á framfarir t.d. með að spila á tónleikum. Nenni engu skítabandi sem gerir aldrei neitt, er alltaf að æfa sömu lögin og kemur aldrei með eitthvað nýtt.

Ég spila á bassa og er búinn að spila í 5 ár en þó með mörgum pásum en ég tel mig nú vera nokkuð fínan á bassa. Hef verið í 3 böndum. Langar feitt að komast í eitthvað band, helst hresst jolly pönk. Eða jolly hart rokk eins og Eagles of Death Metal eða eitthvað.

Annars er ég opinn fyrir öllu, electro stöffi eins og Flaming Lips, what ever. Hafið samband! :D