Til sölu er eitt stk. Fender Precision FL Made in USA árg. 1996.

Bassinn er svartur að lit með hvítri plötu og fingraborði úr rósavið. Á fingraborðinu eru strik sem eru í stað þverbanda sem er mjög gott fyrir óvana að hafa.

Eitt örlítið nudd er að finna aftan á honum en annars er hann í fullkomnu ásigkomulagi. Í honum eru Ernie Ball flatwound strengir og annað eins strengjasett fylgir með. Einnig fylgir harðtaska með.

Þetta hljóðfæri hef ég aðeins einu sinni notað opinberlega en annars hefur þessi elska aldrei farið út fyrir hússins dyr.

Verðhugmynd er 100 þús. ísl. krónur.

Rétt er að taka fram að ég er staðsettur á Egilsstöðum.

Sendið mér skilaboð hér á Huga eða hringið í síma 8644247.

Bætt við 13. maí 2007 - 17:54
Ég get sent myndir til þeirra sem vilja. Sendið mér póstfangið ykkar.