Daginn.

Ég er hér með lítið notaðan 100 W Torque T100TR magnara til sölu, Hann er keyptur nýr á 80 þús. hér á landi og er hann rúmlega eins árs. Hann lítur vel út og inputið er í lagi og allt. Er með snúru fyrir hann. Þetta er meira jazz/blús/rokk magnari en metal. Mjög flott clean sound sem að kemur t.d úr honum og alveg tilvalinn í þessa þrjá flokka sem að ég nefni hér að ofan, eða bara hvað sem þú vilt nota hann í. Ég vil fá tilboð en fer ekki undir 55 - 60 þús.
Skipti koma til greina og þá helst meiri metal magnara, er meira í því. Ástæða fyrir sölu er að ég er ekki persónulega að fýla hann í þessa tónlist sem að ég er að spila í augnablikinu. Ef að kemur til skipta þá verður sá magnari helst að vera line 6 eða álíka gerðir meira gerðar fyrir þyngra rokk.