Eftir að lesa “Græjur sem virka!” eftir Elvis2 datt mér í hug að sniðugara væri að hafa svona ‘svæði’ inni á áhugamálinu. Þar væri s.s. kannski skipt niður í flokka, gítar, bassi trommur og svo undirflokkar, magnarar pedalar o.s.frv. þar myndi fólk skrifa svona ‘review’. Þarna gæti fólk séð hvort eitthvað sé varið í hlutina. Hægt væri að svara og gefa sitt álit á vörunni en bannað væri að vera með eitthvað “ég er sammála” og svona, bara ‘review’.

Hægt væri að hafa þetta neðst á síðunni og ef þetta væri vel flokkað myndi þetta eflaust heppnast vel.