Ég á í erfiðleikum með hægri hendina hjá mér. Ég man ekki hvenær þetta byrjaði fyrst og hvað sem ég geri get ég ekki fattað af hverju þetta stafar. Þegar ég er að spila á gítarinn, kassann eða rafmagnsgítarinn og ég er “sitjandi” tek það fram, þetta kemur ekki fyrir spili ég standandi með ól, að þá stoppar allt blóðstreymi til handarinnar. hún verður bara dofin eins og ég hafi sett belti á handlegginn á mér til að stoppa blóðrásina. Þetta er að verða vandamál. Ég get ekki orðið spilað lengur sitjandi og ef ég verð að sitja þá verð ég að vera með ólina og halla mér upp að stólbakinu til að halda gítarnum fyrir framan mig. Og ég veit ekki hvað ég get gert.
“Everything is so simple for you, either you don't understand it, or you don't care.