Ég er með Peavey Classic 50BT212 magnara sem mig langar mjög svo til að skipta út fyrir Fender Deluxe Reverb '65 RI.

Magnarinn er í fullkomnu ásigkomulagi og nýyfirfarinn og hreinsaður. Hann er einungis 1 árs gamall og engir sjánlegir áverkar.

Magnarinn er af gömlu seríunni sem Peavey var með áður en þeir breyttu útlitinu á mögnurunum (til hins verra) og má þess geta að magnarinn er með svörtu tolexi en ekki þessu “tweed” litaða sem þeir eru oftast framleiddir í.

Ef einhver þarna úti hefur áhuga á skiptum þá endilega hafið samband við mig.
Ég er líka opinn/forvitinn fyrir því að fá tilboð uppá aðra Fender magnara, en einungis 100% lampa magnara og helst einungis með 1x12" keilu.