Jæja, núna var pælingin að skipta um lampa í Fender 59' Bassman-inum mínum en þá rann það upp fyrir mér að ég veit lítið sem ekkert um lampa, svo að ég var að vonast til að það væru einhverjir lampanördar sem gætu hjálpað mér aðeins.

Það væri líka ágætt að fá link á einhverja síðu með upplýsingum um mismunandi lampa og hvernig þeir hljóma. Það væri samt best ef að einhver gæti bent mér á einhvern reyndan lampa kall sem að vinnur í einhverjum af hljóðfærabúðunum í Reykjavík.
“Danir eru bara stoned Svíar í sandölum”