Við erum 3 strákar úr Breiðholtinu ( og búum þar enn) og erum að leita okkur að gítarleikara, Hljómborðsleikara og söngvara. Erum tveir 15 og einn 17. Aldur skiptir ekki máli en helst ekki undir 12.
Ætlunin er að spila Progressive Metal eins og t.d Dream Theater með smá ævintýralegum keim.
Báðir þurfa að vera búnir að spila á hljóðfæri sitt í a.m.k ár og krefjumst við þess sérstklega hvað varðar hljómborðsleikarann. Erum með allar græjur, gítara,magnara, og hljómborð en ef að þú átt hljóðkerfi fyrir sönginn sjálfur væri það fínt.
Við erum gítarleikari/hugsanleg bakrödd, trommari og bassaleikari.

Látið vita á huga með því að svara þessum kork eða pm.