Ekki séns… quant (eða hvernig sem það er skrifað) á einn líka.. Einhvern tímann var Leak líka með 100W haus, '89 módel (s.s. ekki með gráu áklæði) til sölu hérna, veit hins vegar ekki hvort eða hvert hann fór..
Þú hefur væntanlega séð auglýsinguna hér fyrir neðan þar sem ég er að auglýsa JMP haus. Það er ekki Silver Jubilee en ég átti um tíma tvo Silver Jubilee magnara og þennan JMP. Jubilee magnararnir eru góðir en samanburður hlið við hlið á Jubilee og JMP 2203 varð til þess að ég seldi Jubilee magnarana. JMP hausinn er besti Marshall sem ég hef prófað.
Vil líka benda á að það er frekar auðvelt að breyta öllum JCM800 og eldri Marshall mögnurum í Silver Jubilee magnara. Það eru til teikningar og “layout” af þessu á vefnum. Maður þarf þó að kunna vel til verka til að gera þetta en efniskostnaðurinn er ekki mikill.
nei ég var ekki búinn að sjá auglýsinguna. en ég væri alveg til í að skoða hann hjá þér. En ég er búinn að vera að leita mér af svona silver jubilee frekar lengi og finn þetta ekki á ebay eða neinu þannig drasli. Ég prófaði þennan magnara eða slash signature gaurinn í hljóðfærabúð í köpen og hef langað í hann síðan en það er alveg útaf kortinu að reyna að finna hann því það voru bara framleidd 3000 eintök þannig ég ætla að reyna að finna einn venjulegan
Það eru yfirleitt nokkrir Silver Jubilee magnarar á eBay og ég hef nokkrum sinnum séð Slash magnarann þar.
Mér finnst 2203 magnarinn vera mun betri en Jubilee magnararnir en það er auðvitað smekkur sem ræður þar. Muninum á Jubilee og 2203 mætti lýsa þannig að sá fyrrnefndi hefur Use Your Illusion hljóminn en sá síðarnefndi hefur Appetite for Destruction hljóminn.
Láttu mig vita ef þú ert alvarlega að spá í 2203 hausinn. Ertu á höfuðborgarsvæðinu?
já ég er í reykjavík… En ég þarf að hafa overdrive pedal með 2202 hausnum? það er enginn driver rás? En ég skal fá að skoða hann hjá þéren gæti ekki keypt hann fyrr en um mánaðarmót nema að ég nái að selja hausinn minn.
Ég hef aldrei þurft að nota overdrive pedala með þessum magnara. Það er ein rás á magnaranum með high og low input. Ef maður er með sterka pickupa og öfluga lampa í formagnaranum fær maður fína bjögun þegar maður notar high inputið. Bjögunin er samt ekki mikil miðað við marga nútíma magnara en alveg passleg fyrir t.d. Guns ‘n’ Roses og AC/DC hljóm. Margir myndu eflaust vilja nota einhvern boost pedala til að fá meiri bjögun, t.d. notar Zakk Wylde svona magnara og boostar hann með pedala.
Ég hef ekki heyrt að hann hafi notað JCM 900 magnara en hann notaði lengi gamlan JCM 800 2203 (sem reyndar var með 6550 lömpum í stað EL34). Fyrstu árin (u.þ.b. 1981-1984) sem JCM 800 línan var framleidd var JCM 800 2203 alveg eins og forveri hans, JMP 2203. Eftir það var JCM 800 2203 breytt örlítið. Síðan gaf Marshall út 2203ZW Zakk Wylde Signature Model sem er endurgerð (+ effects loop) á JCM 800 Magnaranum.
Þú getur prófað að leita líka að Randall BMF haus. Eftir St. Louis atvikið ´91 held ég að það hafi verið, þar sem að trylltir áhorfendur rústuðum öllum græjunum hjá gnr fór slash að leita sér að nýjum jubilee'um með litlum árangri og svo fór á endanum að Randall bjó til nokkrar kópíur af silver jubilee fyrir Slash.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..