Djöfull er ég sáttur!

Fer á morgun (laugard. 3. feb) og kaupi mér Mesa/Boogie Dual Rectifier Roadster haus og 4x12 Standard Straight Rectifier Cabinet. Ég ætlaði að taka Standard Slant box en þeir seldu víst seinasta eintakið fyrir stuttu, það var greinilega ekki skrifað á frátektarmiðann að ég vildi Slant box þannig að ég verð að láta mér nægja Straight. Ekki nema ég vilji bíða í nokkra mánuði sem kemur ekki til greina :D
En mér var samt sagt að það væri meiri bassi í straight boxinu, og hann sagði mér bara að tékka hvað mér fyndist.

Kyngimagnaður andskoti verð ég að segja! Ég er allavega helvíti spenntur og get ekki beðið eftir að prófa kvikyndið.

Stökk úr biluðum Line 6 Spider II magnara í Mesa Roadster hálf stæðu er myndi ég segja helvíti stórt stökk :D

Ég veit ekki einusinni afhverju ég er að pósta þessu hérna, ég bara er svo helvíti spenntur fyrir þessu :) Wish me luck!

Ég skal svo senda inn mynd af græjunni þegar ég er kominn með hana í æfingarhúsnæðið!


-Hlynur Stef
…djók