Mig langaði bara að benda þeim gítarleikurum sem ekki þekkja Z.Vex á þennan stórgóða effektaframleiðanda og halda stutta lofræðu um Z.Vex Box of Rock.

Ég hef hingað til aldrei getað sætt mig við bjögun úr distortion pedulum þar sem þeir virðast alltaf ræna dýptinni úr gítarhljóminum. En eftir að hafa lesið góða dóma og heyrt hljóðdæmi á vefnum ákvað ég að taka sénsinn og kaupa mér Box of Rock.

Hljóðdæmið á youtube hljómaði bara skrambi vel í mínum eyrum en ég þorði samt ekki að búast við nákvæmlega sama hljóminum úr mínum græjum. Ég þorði heldur ekki að vona að pedallinn myndi henta Stratocaster jafn vel og Les Paul-inum í hljóðdæminu.

Ég keypti pedalann á eBay (u.þ.b. 20.000 kr hingað kominn) og fékk hann í hendurnar viku síðar. Ég tengdi hann í græjurnar mínar (Gibson Les Paul -> BOR -> Marshall 1962 Bluesbreaker Reissue) og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Hljómurinn var alveg eins og í hljóðdæminu og youtube, eða eiginlega enn betri og pedallinn bregst einstaklega vel við öllum blæbrigðum í spilamennsku og og verður ótrúlega hreinn og tær þegar lækkað er í gítarnum. Þetta var ekta AC/DC - Gary Moore hljómur.

Næst var að prófa Stratocasterinn. Ég trúði varla mínum eigin eyrum. Með pedalann stilltan á næstum alveg “clean” hljóm þá hljómaði hann betur heldur en að tengja gítarinn beint í magnarann. Ég hélt að það væri ekki hægt. Þegar ég hækkaði í “drive” kom þessi fíni Frusciante/Hendrix/Vaughan tónn.

Eitt gott við þennan pedala að hann er með innbyggðum öflugum “booster” á eftir distortion rásinni sem gerir manni kleift að hækka í gítarsólóum bara með því að stíga á hinn takkann. Þá þarf maður ekki lengur að treysta á hljóðmenn til að hækka fyrir mann. Maður er einmitt yfirleitt hálfnaður með sólóið þegar hljóðmaðurinn fer að hækka í manni :)

Þetta er semsagt besti distortion pedali sem ég hef prófað og mæli ég eindregið með honum í allt nema metal.

Þá er þessari lofræðu lokið :)

Tenglar:

http://zvex.com/vexterbor.html
http://www.youtube.com/watch?v=0grV9CeHtbg
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Effects/product/Zachary+Vex/Box+of+Rock/10/1
http://cgi.ebay.com/Z-VEX-ZVEX-VEXTER-BOX-OF-ROCK-BRAND-NEW-MODEL_W0QQitemZ280070444773QQihZ018QQcategoryZ41418QQssPageNameZWDVWQQrdZ1QQcmdZViewItem