Er að reyna að selja magnarann minn:

Marshall JCM 2000
TSL 602 Combo
<——- Linkur á mynd og upplýsingar.

Þetta er 60 Watta High-Gain lampa-combo með tveimur keilum (stereo) og þremur rásum (Clean, Crunch og Lead). Gott overdrive í gangi á þessum magnara en ég heillaðist meira af clean rásinni sjálfur, en það er fínt að henda smá auka overdrive á gain rásirnar til að fá meiri metaltón ef þess er óskað. Það eru fjórir ECC83 lampar í formögnun og tveir EL34 í kraftmögnun.

Keypti þennan magnara fyrir u.þ.b. hálfu ári og hann er í mjög góðu ástandi. Held að magnarinn sé í heildina litið 3-4 ára gamall, en ég keypti hann notaðann. Þetta er mjög góður magnari, en hann henntar mér bara ekki og þessvegna held ég að ég ætti frekar að leyfa öðrum að njóta hanns.

Hvað varðar verð þá set ég á hann 80 þús sem ég myndi telja væri sanngjarnt. Er líka opinn fyrir skipti á öðrum magnara (Lampa).
“Don't mind people grinning in your face.