Ég er með til sölu Line6 Variax Acoustic týpuna.
Hann er um það bil ársgamall, alls ekki mikið notaður, vel með farinn. Keypti hann nýjan sjálfur.

Get tekið myndir af honum ef einhver hefur áhuga.

Svona græja kostar 130.000 kr ný út úr Tónastöðinni, ég hafði hugsað mér að selja þennan á 100.000 kr eftir að hafa farið með hann niðrí Tónastöð og spurt hvað ætti að setja á hann.

Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta alveg magnaður digital gítar sem er t.d. hægt að hækka og lækka án þess að stilla hann, og m.a. er hægt að líkja eftir banjo-i, sítar, tólf strengja gítar og mörgum mismunandi kassagítörum.

Ef einhverjar spurningar vakna, eða þig langar til að prófa gripinn, þá er númerið hjá mér 699-7912.

Kveðja,
iMMerse