Þetta er frábært byrjendasett eða sem aukasett fyrir hina hljómsveitina. Eða einsog ég sem spila á bassa en finnst gott að eiga svona útí skúr til að geta boðið trommurum í heimsókn án þess að það sé e-ð meiriháttar vesen fyrir þá.

Tegundin er Pulse
Litur svartur
20“ bassatromma
12” tomtom
10" tomtom
Hihat statíf Premier
Bassapedall Premier
Nýleg Evans G2 skinn
kjuðar og krappí noname crash og hihat diskar geta fylgt. Það er ekki floor tom með þessu

Hef því miður ekki mynd en það ætti ekki að vera erfitt á ímynda sér hvernig þetta lúkkar.

Tek fram að það settið sándar frábærlega með þessum skinnum. Bassatromman er e-ð dýpri en í algengustu settum.

Fer ekki neðar en 20.000 enda er það mjög passlegur jólapakki ;)

Bætt við 26. nóvember 2006 - 12:07
Gleymdi að það fylgir Premier cymbalstandu