Laugardaginn 28.október kl.13.00 verður gítarsnillingurinn Ralf Jung


með kynningu á
Digitech gítar-effektum.
Ralf Jung er þekktur fyrir að ferðast víða um heim og sýna hina fjölbreyttu möguleika fyrir gítarleikara, sem Digitech vörurnar bjóða upp á. Má þar nefna sérstaklega DigiTech GNX3000, Jimi Hendrix pedalann og JamMan. Ralf er eftirsóttur session gítarleikari og hefur leikið með hljómsveitum eins og Dio, No Mercy, XXL, Worlds Aparts og Deaf Nuts. Sérstakur kynningarafsláttur verður af öllum Digitech vörum Laugardaginn 28.október. Kynningin er í Hljóðfærahúsinu Laugavegi 176 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.