Þannig er mál með vexti að ég á Orange AD30 haus sem mér þykir mjög vænt um. Þar á móti á ég formagnara sem mér þykir ennþá vænna um og það gerir hausinn minn ekki jafn gagnlegan og kjósa mætti.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver ætti Gítarkraftmagnara sem er með 8ohm útgang og vildi skipta á honum og þessum haus.

Ég veit að þetta eru langsótt skipti en ég hef nú séð margt verra sbr. “Óska eftir ókeypis boxi” eða álíka sviðað.

Bætt við 16. október 2006 - 16:14
svipað átti þetta að vera…
“That's funny to me”