Án þess að vera með leiðindi þá mæli ég með warmoth.com, þar geturu fengið mjög fína hálsa á góðu verði, ef þú ert að gera upp gítar þá myndi ég mæla með þeim tvímælalaust.
Það er oft sem hægt er að fá mjög góða varahluti á gítarinn sinn án þess að leita til upprunalega framleiðanda.
Ef þú vilt ekki fara þá leið þá er best fyrir þig að kynna þér eiginleika hálsa betur og reyna að finna út hvernig háls þú vilt, því að Fender Telecaster háls er ekki bara ein tegund af háls. T.d. er gott að huga að efni í háls og fretborði, hve mörg frett og svo margt fleira. (Ef þú ert bara að fá þér Fender háls útaf logo-inu þá skaltu frekkar spara þér peningin og kaupa bara fender límmiða og líma yfir gamla merkið, ekkert illa meint.)
Annars þá mæli ég með að þú skoðir www.warmoth.com bæði til að fræða þig um efni í hálsum (þarna er hægt að sjá hvaða eiginleika þessi helstu efni hafa) og líka til að panta þér ef þú vilt fara þá leið.
Gangi þér vel. :)