Er nýr í þessum effekta málum. Fékk mér DigiTech multi-effekt fyrir nokkrum árum, bara svona til að athuga hvernig effektar ég myndi nota mest og nokkurnvegin hvernig þetta virkar.

En er nú að leita að betri effekt, ekki multi. Er að spá í Distortion eða OverDrive. Veit ekki hvort hentar betur.

Væri til í svona svipaðan hljóm og er í aðal stefinu í Sweet Child'o Mine[pikkið], eða einhvern svipaðan hljóm og er í Whiskey in the Jar [litla sólóinu í byrjun]..

Eins og þið kannski sjáið veit ég ekki alveg að hverju ég er að leita að, er meira bara svona að skoða þetta. Er að spá í max budget 10þúsund.

Getiði bent mér á einhverja sérstaka sem ég get verzlað mér hér heima?

Kv.viTko