halló,

Ég var að fjárfesta í þessum forláta tuner frá Boss og var að velta fyrir mér að nota hann líka sem “power-source” fyrir hina effectana mína. Það sem ég var að spá er hvort að hann geti bara tengst í aðra Boss pedala eða hvort þeta virki bara fyrir alla 9v pedala? Ef svo, hversu marga? Gæti ég alveg tengt 5-6 stykki í hann með svona multi-AC-plöggi?

Og önnur spurning:

Ég er með:

Line 6 Delay modeler
Boss Overdrive/distortion (guli)
Big Muff Pi (USA)
Danelectro Tremolo
Boss TU-2

Hvar á ég að hafa Tunerinn í röðinni? Fremst ekki satt? (fremst = snúran úr gítarnum í tunerinn og svo framvegis)

takk takk!